Vottanir eru ekki aðeins til marks um gæði laxins, heldur einnig um sjálfbærni starfseminnar. Þær votta það að Kaldvík leggur sig fram við það að viðhalda heilbrigðu vistkerfi, starfsumhverfi og velferð fiskana.
Vottun Whole Foods er til marks um sjálfbærni, gæði og gagnsæi í fiskeldi. Með ströngum stöðlum tryggir Whole Foods að neytendur hafi aðgang að vörum sem eru ræktaðar á ábyrgan hátt, þar sem heilbrigði vistkerfa og sanngjarnir starfshættir eru í forgangi. Þessi skuldbinding veitir neytendum traust á vali sínu, vitandi að þeir styðja umhverfisvernd og ábyrga framleiðsluhætti þegar þeir versla í Whole Foods.
ASC-vottunin (AquacultureStewardship Council) er ein kröfuharðasta gæða- og umhverfisvottunin í matvælaiðnaðinum. Staðallinn var þróaður af Alþjóðalega náttúruverndarsjóðnum (World Wildlife Fund) og vottar framlag framleiðenda um sjálfbæra og örugga starfshætti, dýravelferð og verndun nærliggjandi vistkerfa.
Lax
Laxeldi
Heimilisfang
Kaldvík ehf.
Strandgata 18,
735 Eskifjordur
Netfang
contact@kaldvik.is
© 2025 Kaldvik