Kaldvík hefur alla virðiskeðjuna á eigin hendi. Í seiðaeldisstöðvum okkar eru seiðin alin á landi. Laxinn vex síðan í sjókvíum á Austfjörðum. Við slátrum honum og pökkum á Djúpavogi.

Allt frá seiðaeldisstöðvunum til eldissvæðanna í sjó og sláturhússins eru allar starfsstöðvar Kaldvíkur á Íslandi. Flestar eru á Austfjörðum.
Starfsstöðvar
Kaldvík hefur alla virðiskeðjuna á eigin hendi. Í seiðaeldisstöðvum okkar eru seiðin alin á landi. Laxinn vex síðan í sjókvíum á Austfjörðum. Við slátrum honum og pökkum á Djúpavogi.
Hvar okkur er að finna
Höfuðstöðvar okkar eru að Strandgötu 18 á Eskifirði.
Við ölum lax í Berufirði, Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði og Stöðvarfirði.
Við ölum seiði á landi í seiðaeldisstöðvum okkar í Þorlákshöfn og við Kópasker.
Búlandstindur, sláturhús okkar að Bakka 4 á Djúpavogi, er með BRCGS-vottun fyrir matvælaöryggi.
Djúpskel framleiðir kassana sem við pökkum laxinum í, skammt frá sláturhúsinu.
Við höfum leyfi til laxeldis í Seyðisfirði. Eldi er ekki hafið.
Í undirbúningi
Kaldvík hefur leyfi til laxeldis á þremur eldissvæðum í Seyðisfirði. Eldi er ekki hafið. Fyrst þurfa þau leyfi sem eftir standa að liggja fyrir og fara þarf ítarlega yfir verkefnið.
Hér má lesa um áformin, hvernig eldissvæðin voru valin, siglingar og umhverfi og finna svör við algengum spurningum.
