Kaldvík hefur fengið starfs- og rekstrarleyfi til fiskeldis í Seyðisfirði og útgáfa leyfanna markar mikilvægan áfanga í uppbyggingu félagsins á Austurlandi eftir langan undirbúning. Við fögnum þessum áfanga og horfum til næstu skrefa í verkefninu, þar sem áhersla Kaldvíkur verður á vandaðan undirbúning og fagleg vinnubrögð, með umhyggju fyrir fiskinum, umhverfinu og samfélaginu að leiðarljósi. Við þökkum starfsfólki okkar og samstarfsaðilum fyrir vinnuna og þrautseigjuna sem liggur að baki þessum áfanga. Við hlökkum til að halda áfram uppbyggingu Kaldvíkur á Austurlandi og munum miðla frekari upplýsingum um framvindu verkefnisins þegar næstu skref hafa verið útfærð.