MenuMenu
26 Sept, 2024  •  Stakeholders

Kaldvík’s new name Fiskeldis Austfjörður and stock exchange registration welcomed 

Það var mikið um að vera í Randulffssjóhúsi á Eskifirði í gær þegar félagið Kaldvík fagnaði skráningu í Kauphöllina. Kaldvík er nýtt nafn Laxa, Fiskeldis Austfjarða og Búladstinds sem sameinuðust og starfrækja laxeldi og vinnslu á Austfjörðum.

Eldisbátum Kaldvíkur var stillt upp við sjóhúsið og við lokun kauphallarinnar á slaginu hálf fimm þeyttu þeir flautur þegar kauphallabjöllunni var hringt en skráning Kaldvíkur tekur gildi á morgun.

„Nú er félagið sem hefur bara verið skráð í norsku kauphöllina að skrá sig núna á Nastaq á Íslandi. Þetta gefur íslenskum fagfjárfestum enn þá betra tækifæri að kaupa í félaginu. Þegar verður horft til hlutafjáraukningar í framtíðinni til að styðja við áframhaldandi vöxt félagsins þá er orðið betra fyrir íslenska fjárfesta að koma sterkar inn í félagið og með sterkari hætti,“ segir Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóri Kaldvíkur.

Footer CTA Banner

Care for salmon and heritage

Address

Kaldvík ehf.

Strandgata 18,

735 Eskifjordur

Email

contact@kaldvik.is

© 2025 Kaldvik